Með Splitta heldur þú utan um kostnað með vinum eða hvaða hóp sem er. Veldu færslur beint úr yfirlitinu þínu og gerðu upp við hópinn í appinu.
Til þess að stofna hóp þarftu að vera í annað hvort Aur Núll eða Aur Plús. Það er mjög einfalt að græja þetta í Aur appinu.
Þú getur tekið allar kortafærslur og ógreidda reikninga og sent þær í viðeigandi hóp. Einnig er hægt að handfæra inn upphæðir.
Appið sér um að reikna allt út fyrir þig og þú síðan borgar þína skuld með einum smelli.